laugardagur, 19 maí 2012
Forsíða  
 

Innskráning






Týnt lykilorð?

Teljari

Gestir: 161645
 
 
Endurbætt heimasíða FíF.

Velkomin á nýja og endurbætta heimasíðu FÍF, félags íslenskra fíkniefnalögreglumanna.  Síðunni er ætlað að veita fróðleik um fíkniefni og skaðsemi þeirra.  Á síðunni er hægt að fræðast um fíkniefni, áhrif, útlit neytenda, neysluáhöld os.frv.

Fjölmargar heimsóknir hafa verið á síðuna okkar, þegar skipt var um útlit, þann 24.janúar 2007, hafði síðan verið skoðuð tæplega 69 þúsund sinnum. 

Það er von okkar að þessi síða nýtist þeim sem eru í leit að upplýsingum varðandi skaðsemi fíkniefna.

Við viljum benda á fróðlega síðu, streetdrugs.org, en þar er að finna ýmsan fróðleik um hin ýmsu fíkniefni og skaðsemi þeirra.


Útgáfa upplýsingarits um fíkniefni

 Fræðslu og forvarnarritið Fíkniefni, vímuefni og heilsuspillandi efni er gefið út af félagi íslenskra fíkniefnalögreglumanna FÍF í samvinnu við Svenska narkotika polis föreningen SNPF og Mediahuset í Gautaborg. Ritið fæst á öllum þjónustustöðvum N1 og kostar kr. 3.000,-

Höfundur ritsins er Jonas Hartilius og er hann einn fremsti sérfræðingur í heiminum í dag um fíkniefni, samsetningu þeirra og vikni. Hann er ráðgjafi hjá ýmsum stofnunum í Evrópu.

Fjallað er á hlutlausan hátt um fíkniefni frá öllum hliðum í ritinu. Farið yfir sögu og virkni fíkniefna, fjallað um hliðarefni, neyslu og neyslumynstur, áhöld, afleiðingar og ávanabindingu.  Í blaðinu er fjöldi mynda sem sýna hinar ýmsu útfærslur á fíkniefnunum. Ritið skiptist í 10 kafla sem fjalla almennt um fíkniefni, kannabis, ópíöt, efni sem örva miðtaugakerfið, ofskynjunarefni, lyf, örvandi lyf, heilsuspillandi efni, uppgötvun á lyfja misnotkun og vímu og orðskýringar. Ákveðið var að gefa út rit sem svarar flestum spurningum um fíkniefni þar sem áhugi hefur verið fyrir að fræðast meira um þessi efni, afleiðingar þeirra og hvernig má þekkja þau.

FÍF óskar þess að útgáfa ritsins verði til þess að sem flestir geti kynnt sér innihaldið og öðlist með því þekkingu á því hvað fíkniefni eru, hvernig þau líta út, orsakir og afleiðingar með neyslu á þeim. Ritið er fyrst og fremst fræðslurit, þar sem safnað er saman flestum staðreyndum um fíkniefni. 

Ákveðið var í upphafi að hafa ritið ekki auglýsingarit, þ.e. fylla það af auglýsingum til að standa undir kostnaði. FÍF stendur að mestu sjálft undir kotnaði en fékk til liðs við sig tvo sterka aðila, Actavis og N1 sem hjálpaði okkur mikið.  Þetta er dýr fjárfesting hjá FÍF og við vonum að almenningur taki vel á móti ritinu og fjárfesti í þeirri forvörn sem við teljum að sé til staða með því.

Félag íslenskra fíkniefnalögregumanna FÍF var stofnað þann 18. janúar 1996. Tilgangur félagsins er samkvæmt lögun þess er að auka víðsýni félagsmanna, standa fyrir útgáfu á ýmsum upplýsingaritum er snúa að fíkniefnamálum og efla þekkingu félagsmanna sem og annarra á þeirri vá sem fíkniefni og fíkniefnaneysla er í þjóðfélaginu. 

 
Hald lagt á 13.000 steratöflur í vörusendingu frá Taílandi.

Frétt af mbl.is

"Tollverðir fundu á föstudag um eða yfir 13.000 steratöflur í vörusendingu sem hafði verið skipað í land í Reykjavík. Viðtakandi sendingarinnar var verslunarmaður á Suðurnesjum og voru efnin flutt inn í nafni hans.

Magnið er mikið en það er þó ekki einsdæmi að lagt sé hald á svo mikið magn af sterum og sem dæmi má nefna að í mars í fyrra lagði tollstjórinn hald á mikið magn af sterum á líkamsræktarstöð í borginni. Í janúar sl. komu tollverðir á Seyðisfirði upp um tilraun til að smygla um 200 hylkjum af vaxtarhormón og um 40 hylkjum af sterum til landsins en efnin voru falin í bifreið.

Þeim sem nota ólöglega stera eða hugsa sér að gera það má m.a. benda á að nýlega sýndu vísindamenn við Yale-háskóla fram á að þeir sem nota stera til að byggja upp vöðvamassa eiga á hættu að heilafrumur eyðist í stórum stíl."

Í niðurstöðum rannsóknarinnar segir meðal annars að sú staðreynd sé þekkt að mikil notkun á sterum veldur miklum skapgerðarbrestum, árásargirni og sjálfsvígstilhneigingum.

Einnig segir í niðurstöðunum að testesteron er aðal karlhormón líkamans og skipar mikilvægt hlutverk í myndun, greiningu og stækkun heilafrumna. Testesteron getur haft þau áhrif á taugafrumur að jafnvægi þeirra raskast sem síðan leiðir til skapgerðarbreytinga og minnisleysis.

Fyrir neðan er hlekkur á heimasíðu Yale þar sem lesa má greinina í heild sinni.

 

http://www.yale.edu/opa/newsr/06-09-26-01.all.html

Þess má einnig geta að notkun á sterum hefur áhrif miklu fleiri þætti líkamsstarfsseminnar eins og lifrina, hjartað, nýrun, sæðisframleiðslu og fleira. Það er ekki óalgengt að komið sé með ungt fólk, yfirleitt karlmenn, á bráðamóttökur sjúkrahúsanna vegna alvarlegra hjartatruflanna sem orsakast af steranotkun.

 
 

Könnun

Í hvaða tilgangi notar þú fikno.is
 
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement